Drykkjartoppar

Við bjóðum uppá drykkjartoppa sem eru að ryðja sér til rúms á viðburðum um allan heim. Drykkjartopparnir eru þunnar, ætanlegar skífur sem liggja ofan á drykkjum og gera hvern kokteil, mocktail eða glas að hluta af upplifuninni.

Þetta er nýjung á Íslandi og fullkomið fyrir:

  • veislur og afmæli
  • brúðkaup
  • fyrirtækjaviðburði
  • vörukynningar
  • barþjóna og veitingastaði sem vilja stíga skrefið lengra

Hvað eru drykkjartoppar?

Drykkjartoppar eru prentaðar á pappír, sem er búinn til úr kartöflusterkju, sem er:

  • örþunnur
  • bragð- og lyktarlaus
  • leysist upp í munni
  • algjörlega öruggur til neyslu

Skífan er lögð varlega ofan á froðukenndan drykk (t.d. espresso martini) eða sett á glasbrún með klemmu.

Úr hverju eru topparnir?

Við notum pappír sem er sérstaklega framleiddur fyrir matvælaprentun.

Pappírinn:

  • Unninn úr kartöflusterkju
  • Glútenlaus
  • Án ofnæmisvalda
  • Vegan
  • Bragð- og lyktarlaus

Er blekið öruggt?

Já.
Við prentum eingöngu með ætanlegu matvælableki sem er:

  • sérframleitt fyrir matvælaprentun
  • án bragðs og lyktar
  • ætlað til neyslu

Blekið er notað víða í köku-, konfekt- og veisluiðnaði erlendis og er fullkomlega öruggt.

Er bragð af drykkjartoppunum eða blekinu?

Nei – og það er einmitt kosturinn.

Drykkjartoppar:

  • breyta ekki bragði drykksins
  • breyta ekki lykt
  • eru fyrst og fremst sjónræn upplifun

Gestir fá „wow“-áhrif án þess að kokteillinn breytist.

Hvernig eru topparnir notaðir?

Besti árangur næst þegar toppurinn er:

  • lagður á froðu (t.d. espresso martini, sour, mocktail)
  • eða settur á glasbrún með klemmu

Skífan liggur létt ofan á drykknum og helst þar í dágóðan tíma áður en hún leysist smám saman upp.

Sérhönnun fyrir hvern viðskiptavin

Allir drykkjartopparnir eru:

  • sérhannaðir eftir óskum viðskiptavinar
  • prentaðir eftir pöntun
  • framleiddir á Íslandi

Þú getur útfært þína toppa eftir þínu höfði, sem dæmi:

  • texta
  • nöfn
  • dagsetningar
  • einföld lógó
  • tákn eða grafík

Þetta gerir vöruna fullkomna fyrir:

  • veislur
  • markaðssetningu
  • vörumerkjaupplifun

Af hverju að velja drykkjartoppa?

  • Nýjung sem fæst ekki annars staðar á Íslandi
  • Sameinar hönnun, upplifun og mat
  • Skapar eftirminnileg augnablik á myndum og í raunheimi
  • Hentar jafnt einkaaðilum og fyrirtækjum

Stærð | Þvermál | Hentar best fyrir

  • XS | 3,8 cm | Lítil glös, kampavínsglös (fest á hlið með klemmu)
  • S | 5,1 cm | Einföld lógó, cocktail- og highballglös með skreytingu
  • M | 6,4 cm | Martíniglös (vinsælasta stærðin)
  • L | 7,6 cm | Martíni- og coupeglös (fyrir áberandi útlit)

Gott að vita

  • Lágmarkspöntun miðast við eina A4 örk
  • Verð fer eftir stærð toppa
  • Öll verð eru með VSK
  • Framleitt eftir pöntun