Drykkjartoppar
Við bjóðum uppá drykkjartoppa sem eru að ryðja sér til rúms á viðburðum um allan heim. Drykkjartopparnir eru þunnar, ætanlegar skífur sem liggja ofan á drykkjum og gera hvern kokteil, mocktail eða glas að hluta af upplifuninni.

Þetta er nýjung á Íslandi og fullkomið fyrir:
- veislur og afmæli
- brúðkaup
- fyrirtækjaviðburði
- vörukynningar
- barþjóna og veitingastaði sem vilja stíga skrefið lengra
Hvað eru drykkjartoppar?
Drykkjartoppar eru prentaðar á pappír, sem er búinn til úr kartöflusterkju, sem er:
- örþunnur
- bragð- og lyktarlaus
- leysist upp í munni
- algjörlega öruggur til neyslu
Skífan er lögð varlega ofan á froðukenndan drykk (t.d. espresso martini) eða sett á glasbrún með klemmu.
Úr hverju eru topparnir?
Við notum pappír sem er sérstaklega framleiddur fyrir matvælaprentun.
Pappírinn:
- Unninn úr kartöflusterkju
- Glútenlaus
- Án ofnæmisvalda
- Vegan
- Bragð- og lyktarlaus
Er blekið öruggt?
Já.
Við prentum eingöngu með ætanlegu matvælableki sem er:
- sérframleitt fyrir matvælaprentun
- án bragðs og lyktar
- ætlað til neyslu
Blekið er notað víða í köku-, konfekt- og veisluiðnaði erlendis og er fullkomlega öruggt.
Er bragð af drykkjartoppunum eða blekinu?
Nei – og það er einmitt kosturinn.
Drykkjartoppar:
- breyta ekki bragði drykksins
- breyta ekki lykt
- eru fyrst og fremst sjónræn upplifun
Gestir fá „wow“-áhrif án þess að kokteillinn breytist.
Hvernig eru topparnir notaðir?
Besti árangur næst þegar toppurinn er:
- lagður á froðu (t.d. espresso martini, sour, mocktail)
- eða settur á glasbrún með klemmu
Skífan liggur létt ofan á drykknum og helst þar í dágóðan tíma áður en hún leysist smám saman upp.
Sérhönnun fyrir hvern viðskiptavin
Allir drykkjartopparnir eru:
- sérhannaðir eftir óskum viðskiptavinar
- prentaðir eftir pöntun
- framleiddir á Íslandi
Þú getur útfært þína toppa eftir þínu höfði, sem dæmi:
- texta
- nöfn
- dagsetningar
- einföld lógó
- tákn eða grafík
Þetta gerir vöruna fullkomna fyrir:
- veislur
- markaðssetningu
- vörumerkjaupplifun
Af hverju að velja drykkjartoppa?
- Nýjung sem fæst ekki annars staðar á Íslandi
- Sameinar hönnun, upplifun og mat
- Skapar eftirminnileg augnablik á myndum og í raunheimi
- Hentar jafnt einkaaðilum og fyrirtækjum
Stærð | Þvermál | Hentar best fyrir
- XS | 3,8 cm | Lítil glös, kampavínsglös (fest á hlið með klemmu)
- S | 5,1 cm | Einföld lógó, cocktail- og highballglös með skreytingu
- M | 6,4 cm | Martíniglös (vinsælasta stærðin)
- L | 7,6 cm | Martíni- og coupeglös (fyrir áberandi útlit)
Gott að vita
- Lágmarkspöntun miðast við eina A4 örk
- Verð fer eftir stærð toppa
- Öll verð eru með VSK
- Framleitt eftir pöntun

