Leiguskilmálar viðburðaleigu

Skilmálar og upplýsingar um Prentari.is

Leigusali Samstarf ráðgjöf ehf, kennitala: 460120-0630.

Leigutaki er sá aðili sem skráður er á leigusamning. Leigusamningur verður sendur til leigutaka og skal undirritaður fyrir leigu á prentara.

Verðskrá miðast við leigutíma og gildir fyrir höfuðborgarsvæðið. Leiga utan höfuðborgarsvæðis kostar 20.000 kr aukalega, miðað við að hámarki 100 km frá höfuðborgarsvæðinu. Lengri fjarlægðir þarf að ræða sérstaklega.

Sendur er reikningur á leigutaka sem krafa í netbanka.

Leiga á stóra prentara er tvenns konar, með eða án starfsmanns.

Með starfsmanni:

Prentari.is kemur með prentarann, setur hann upp, sér um alla meðhöndlun og tekur hann að viðburði loknum. Ekki er í boði að sækja prentarann til leigusala og setja hann upp sjálfur.

Án starfsmanns:

Prentari.is kemur með prentarann, setur hann upp og verður með stutta sýnikennslu í notkun. Að leigutíma loknum sækir Prentari.is prentarann til leigutaka.

Leiga á lófaprentara:

Prentari.is kemur með lófaprentara til leigutaka og verður með stutta sýnikennslu í notkun. Að leigutíma loknum sækir Prentari.is lófaprentarann til leigutaka.

Tryggingargjald er fast gjald og greiðist við afhendingu prentarans. Tryggingargjaldið er endurgreitt að fullu ef prentari er skilaður í sama ástandi og við afhendingu.

Farið er með allar persónuupplýsingar sem leigusali móttekur sem trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu.