Lófaprentari
44.490 kr.
Handhægur matvælaprentari með einu brúnu blekhylki, skapalóni úr ryðfríu stáli og hleðslusnúru (USB-C).
Þú stýrir öllu í gegnum smáforrit í símanum þínum.
Lýsing
Lófaprentaranum okkar fylgir:
- 1x einlitt brúnt prenthylki sem getur prentað allt að 7.000 sinnum. Prentstærð (2.6cm×5cm)
- Skapalón úr ryðfríu stáli til að stilla prentunina af á flötinn sem prenta skal á.
- Hleðslusnúra.
- Notkunarleiðbeiningar.
Prentarinn er afar einfaldur í notkun og getur prentað á hina ýmsu fleti, eins og makkarónur, brauð, kökur, súkkulaði o.fl. Drykkir með froðu eins og kaffifroðu, kokteilar með froðu eða Guinness bjórfroðu. Að auki er hægt að prenta á postulínsdiska, pappadiska og servíettur. Blekið inniheldur matarlit sem hefur engin áhrif á lykt né bragð af því sem prentað er á.
Við bjóðum einnig til sölu viðbótar brún eða svört blekhylki.









